Veggdjásn

SVG file icon
 

Er eitthvað fegurra en ásjónur barnanna ykkar?

  • Er ekki tilvalið að klára sköpunarferlið og panta stórt myndverk af djásnunum ykkar?

  • Veggdjásn er ómetanlegt listaverk af fjölskyldunni ykkar. Persónuleg fjölskyldulist og handverk sem endist ævilangt.

  • Þið fjárfestið í varanlegum minningum um viðburði og tímabil í lífi barnanna ykkar - tími sem kemur aldrei aftur.

  • Þið sendið börnunum skýr skilaboð um hvað þau skipta ykkur miklu máli. Þið elskið þau - alla daga ársins.

  • Að myndatöku lokinni er hægt að vinna úr myndum á fjölbreyttan hátt:

    • Þið fáið myndskrár til að eiga og deila en myndir í skýinu geta gleymst eða jafnvel týnst.

    • Sumar myndir gætu átt heima í myndabókum sem varanlegar minningar um viðburði í lífi barnanna ykkar.

    • Nokkrar myndir gætu komið vel út sem stækkanir og til að gefa þínum nánustu!

    • Bestu myndirnar gætu hins vegar orðið að listaverki með djásnunum ykkar - sannkölluð veggdjásn.

    • Ef þið eigið erfitt með að ákveða hvaða mynd kæmist best út eða velja framsetningu og stærð þá endilega hafið samband og við aðstoðum ykkur. Ekkert veitir okkur meiri ánægju en að hjálpa ykkar við að eignast veglegt veggdjásn til að fegra heimilið ykkar með.

  • Segðu já við veggdjásni af börnunum, makanum og fjölskyldunni þinni..

Veggdjásn fyrir öll ástrík heimili

 
SVG file icon

Ein myndataka - margir möguleikar

SVG file icon

Eruð þið með vegg sem þarfnast upplyftingar?

 
Vintage - vegg-djásn

“Meistaraverkið”

Mín uppáhalds framsetning:

 

Meistaraverkið er framsetning í hæsta klassa.

Framsetning sem hentar stærri lykil-myndverkum.

Útkoman verður meira í átt við gömul málverk en þau voru oft máluð á plötur í stað striga og strekkt á blindramma. Þessi framsetning er í öðrum klassa.

Besta ljósmyndin úr myndatökunni er prentuð á hágæða bómullar-striga og límd beint á álplötu. Hún er síðan lökkuð með UV-glæru til að vernda prentflötinn. Klassískur “Vintage” viðarrammi gefur myndunum listrænt yfirbragð.

Innrömmun er innifalin í verði. Í boði er annað hvort:

  • Ljós / hvíttaður “Vintage” viðarrammi

  • Dökkur / svartbrúnn “Vintage” viðarrammi

Skýring:

Þetta er ný framsetning sem ég hef þróað sjálfur. Ég veit ekki til þess að það sé nokkur annar ljósmyndari sem prentar út og rammar inn ljósmyndir með þessu hætti. “Meistaraverkið” er listrænt handverk unnið með augum og alúð meistarans.

Þessi veglega framsetning hentar öllum ástríkum heimilum.

Fegraðu heimilið með djásnunum þínum.

SVG file icon
Láréttar - 3:2 Ferningslaga - 1:1 Ílangar - 2:1 Verð með innrömmun
::: ::: ::: :::
40x60 50x50 30x60 95.000
50x75 60x60 40x80 125.000
60x90 70x70 50x100 175.000
80x120 90x90 70x140 225.000

Verðlisti fyrir meistaraverks-framsetningu:

Myndverkið kemur tilbúin í dökkum eða ljósum viðarramma með upphengjum.

Þið sendið inn pöntun á netfangið sala@jonpall.is með upplýsingum um “framsetningu”, “stærð”, “ramma”, “lit” og “fjölda”.

20% afsláttur ef þið pantið fleiri eintök á sama tíma. Verkin mega vera misstór!

Ef þið þurfið aðstoð þá ekki hika við að tala við okkur fyrst. Við erum hér til að hjálpa ykkur að eignast fjölskyldu-listaverk.

 
Álmyndir

“Ál-myndverk”

Stílhrein framsetning fyrir nútímaleg heimili.

 

A: Álmynd með álramma

Glerfrítt og glampalaust.

Í stað glers er límd UV-hlífðarfilma yfir myndina til að verja hana óhreinindum og ágangi tímans.

  1. Fyrst er myndin prentuð á hágæða ljósmyndapappír.

  2. Þá er hún límd á álplötu sem er stíft og endingargott efni.

  3. Síðan er hún lamineruð með UV filmu.

  4. Loks er hún römmuð inn í álramma með upphengjum.

  5. UV filman ver myndina fyrir útfjólubláum geislum sem upplita myndir og svo eru auðvelt að strjúka af henni með klút.

  6. Stærðir hlaupa á 5 cm.

Álrammar litir:

  • Svört viðaráferð

  • Dökkgrátt

  • Ljósgrátt

  • Hvít viðaráferð

  • Hvítt lakk

  • Svart glansandi

B: Fljótandi álmynd

Rammalaus fljótandi framsetning.

  1. Mynd prentuð á vandaðan ljósmyndapappír.

  2. Myndin er límd á álplötu

  3. Lamineruð með hlífðarfilma.

  4. Bakrammi er á bakinu þannig að myndin “flýtur” aðeins frá vegg.

Hægt er að fá stærri myndir en er í verðlista. Hafið bara samband.

Álmyndir eru sérunnið handverk og lífstíðareign.

SVG file icon
Lóðrétt / lárétt: Ferningslaga: Panorama: Álmyndir-verð
::: ::: ::: Verð m. VSK
30x45 40x40 25x50 45.000
40x60 50x50 30x60 55.000
50x75 60x60 40x80 75.000
60x90 80x80 50x100 90.000

Verðlisti fyrir ál-myndverk:

Sama verð er fyrir álmynd í álramma og “fljótandi” álmynd sem er með rammagrind á baki til að halda myndinni frá vegg

Myndverkið kemur með upphengjum tilbúið til að fegra heimilið.

Þið sendið inn pöntun á netfangið sala@jonpall.is með upplýsingum um “framsetningu”, “stærð”, “ramma”, “lit” og “fjölda”.

20% afsláttur ef þið pantið fleiri eintök á sama tíma. Verkin mega vera misstór!

Ef þið þurfið aðstoð þá ekki hika við að tala við okkur fyrst. Við erum hér til að hjálpa ykkur að eignast fjölskyldu-listaverk.

 
Strigamyndir

“Striga-myndverk”

Tímalausar strigamyndir fyrir hlýleg heimili

 

Strigamyndir af djásnunum þínum

Við notum vandaðan striga úr náttúrulegri bómull. Striginn er lakkaður með fljótandi UV-glæru til að loka litarefni og verja myndina ágangi tímans. Prentað á hágæða prentara með endingargóðu bleki. Strekkt á blindramma og kemur með upphengjum.
Til að lyfta myndverkinu enn meir geturðu fengið sérsmíðaðan flotramma með.

  • Strigamyndir eru ekki í stöðluðum stærðum heldur er það myndin og plássið sem ræður!

  • Stærðir hlaupa á 5 cm.

  • Best er að mæla veggplássið með málbandi til að ákveða stærð áður en þið pantið.

  • Myndirnar skerast mismunandi þannig að þið skulið huga að hlutföllum.

    • Láréttar eða lóðréttar!

    • Ferningslaga!

    • Ílangar - Panórama!

SVG file icon

Flotrammar og innrömmun:

Sérvaldir og sérskornir flotrammar fyrir strigamyndir

Flotrammi gerir vandaðar strigamyndir enn veglegri. Sérstaklega þegar um stærri myndir er um að ræða.

Grannur flotrammi er vinsælasti profíllinn.

Flotrammaefni fæst í nokkrum litum:

  • Lútaður/hvíttaður með mattri viðaráferð - smellpassar við minn drappleita stíl.

  • Svartur með mattri viðaráferð

  • Hvítur lakkaður

  • Svartur lakkaður

  • Ýmsir aðrir prófílar! Kíkið við til að skoða úrvalið.

Með veglegum flotramma lyfturðu börnunum á enn hærra plan…

SVG file icon
Lóðrétt/lárétt - 3:2 / 4:3 Ferningslaga - 1:1 Ílangar - 2:1 / 5:2 Strigamynd sér Flotrammi Verð m/flotramma
Meistaraverk/Strigi ::: ::: ::: ::: :::
18x24 20x20 - 15.000 7.000 22.000
20x30 / 20x25 25x25 18x35 19.000 9.000 28.000
25x30 30x30 20x40 25.000 10.000 35.000
30x45 - 30x40 40x40 25x50 / 20x60 35.000 12.000 47.000
40x60 - 40x50 50x50 30x60 / 25x75 49.000 15.000 68.000
50x75 60x60 40x80 / 30x90 65.000 19.000 84.000
60x90 70x70 50x100 / 40x120 79.000 25.000 104.000

Verðlisti fyrir striga-myndverk:

Þið sendið inn pöntun á netfangið sala@jonpall.is með upplýsingum um “framsetningu”, “stærð” og “fjölda”.

20% afsláttur ef þið pantið fleiri eintök á sama tíma. Verkin mega vera misstór!

Ef þið viljið flotramma aukalega þá bætið þið við upplýsingum um lit á flotramma.

Ef þið þurfið aðstoð þá ekki hika við að tala við okkur fyrst. Við erum hér til að hjálpa ykkur að eignast fjölskyldu-listaverk.

 
Stækkanir með kartoni

“Ljósmynda-verk”

Útprentun á ljósmyndapappír með sýrufríu kartoni

 

Útprentun á ljósmyndapappír - Stækkanir

Stílhrein framsetning og gott verð.

Stækkanir eru afhentar tilbúnar með sýrufríu kartoni (passepartout) sem verndar myndina. Kartonin passa beint í algengustu rammastærðir.

  1. Stærri innrömmuð myndverk eða margar myndir saman á vegg. Sérvinnsla. Hafið samband varðandi útfærslu!

  2. Staðlaðar stærðir - passar í hefðbundna ramma.

  3. Ferningslaga - passar í ferningslaga ramma.

  4. Ílangar / panórama - gæti þurft sérskorinn ramma og karton!

  5. Margar saman - 2-5 myndir saman í ramma.

Athugið að myndir eru í mismunandi hlutföllum: Lóðréttar/láréttar | Ferningslaga | Ílangar!

Stækkanir afgreddar með sýrufríu kartoni í plastvasa eru vinsæl og persónuleg gjöf til ykkar nánustu. Viðtakandi þarf þá að versla sér hefðbundna ramma eftir hentugleika.

SVG file icon

Tilbúnir rammar

Vandaðir rammar - staðlaðar stærðir - gott verð

Vandaðir myndarammar úr gegnheilum viði.

Ferkantaður prófíll - margar rammastærðir.

Til í eftirfarandi tónum:

  • Lútaðir/hvíttaðir með viðaráferð - smellpassar við minn drappleita stíl.

  • Svartir - lakkaðir

Rammarnir eru frá Nielsen Bainbridge einum stærsta rammaframleiðanda í heimi.

SVG file icon
Lóðrétt/lárétt Karton/rammi Ferningslaga Panorama Verð m/kartoni Verð mynd+rammi
➡︎ Myndastærð/cm ⬅︎ Rammastærð - cm Mynd/karton - cm Mismunandi (hlutföll) Verð með kartoni Nielsen Quadrum-Lút/Sv/Hv/
10x15 (Albúmsstærð) 15x20 10x10 - (án kartons) - 8.500 12.000
13x18 (Innifalið) 18x24 15x15 - 20x20 9x18/18x24 (2:1) 9.500 14.000
18x24 24x30 20x20 / 30x30 14x24/21x30-A4 (16:9) 14.000 19.500
20x30 (Innifalið) 30x40 - 15x30/30x40 (2:1) 19.000 26.500
30x40 40x50 40x40 / 50x50 20x40/30x50 (2:1) 29.000 38.500
40x60 60x80 50x50 / 60x60 17x52/25x60 (3:1) 39.000 51.000
Sérvinnsla Hafið samband! - - - -

Verðlisti fyrir útprentanir á ljósmyndapappír og stækkanir með kartoni.

“Rammastærð” er stærðin á bakinu/glerinu á rammanum sem er sama og ytri stærðin á kartoni.

20% afsláttur fyrir fleiri en eitt eintak af sömu mynd í sömu stærð.

 
Innbundnar myndabækur

Myndabækur

Varanlegar minningar sagðar í eigulegri myndabók

 

Myndabækur fyrir varanlegar minningar

Eiguleg myndabók í einu eintaki með fjölda mynda. Sérhannað fyrir hverja fjölskyldu.

  • Það má velja fleiri myndir í bókina umfram það sem var innifalið í myndatökunni.

  • 10+, 20+ eða með eins mörgum myndum og þið viljið :-)

    • Vinsælast er 20x20 bók með litprentari kápu með mynd, nafni og t.d dagsetningu ef tengt viðburði.

    • Fæst einnig í stærra formi 30x30 og þá með fleiri myndum

    • Svo eru líka hægt að fá látlausari bók 20x20 með svartri eða hvítri harðspjaldakápu.

  • Myndirnar eru ca 11x16 cm. Það fer þó eftir hlutföllum, lóðrétt, lárétt, ferkantað eða heil opna. Stærri í 30x30 bók.

  • Þær henta fyrir nýbura, barna-, fermingar-, stúdenta- og fjölskyldumyndatökur.

  • Aukamyndir í bækur eru ódýrustu útprentanirnar og þeim fylgir líka stafrænar myndskrár í net-upplausn.

  • 20% afsláttur af aukabók ef pöntuð á sama tíma.

Myndabók er eiguleg minning og fyrirtaks gjöf.

SVG file icon
Litprentuð kápa mynd og nafni eða svört/hvít Stærð Kápa Innif: Grunnverð:
::: ::: ::: ::: Verð m/vsk
Svört eða hvít kápa. Harðspjalda myndabók með 10+ myndum (ekkert hámark) 20x20cm Svört/hvít kápa 10+ myndir 29.000
Myndabók 20x20cm með litprentaðri kápu t.d. mynd og nafn - 20+ myndir (ekkert hámark) 20x20cm Litprentuð kápa 20+ myndir 39.000
Stór myndabók 30x30cm með litprentaðri kápu t.d. mynd og nafn - 20+ myndir (ekkert hámark) 30x30cm Litprentuð kápa 20+ myndir 49.000
Aukamyndir í bækur - einnig afhent stafrænt - - Stakar myndir 4.500 stk.
10+ aukamyndir í bækur (20% afsl.) - einnig afhent stafrænt - - 10+ myndir 3.500 stk.
Aukabækur - 20% afsláttur fyrir "eins" bækur* - - 10+/20+ - 20%

Verðlisti fyrir myndabækur:

20% afsláttur ef pantaðar eru 2 eða fleiri “eins” bækur á sama tíma.

Fyrir “flóknar” fjölskyldur er hægt skipta um 1-2 myndir í bók en samt teljast “eins”.

 
Stafrænar myndir til að eiga og deila

Myndskrár

Stafrænar myndir til að eiga, mæra, dást og deila

 

Myndskrár

Til að eiga, geyma, dást og deila

Net-upplausn

Til að eiga og deila

Stafrænar myndir í netupplausn fylgja myndatökum.

Stærðin samsvarar 10x15cm í prentun eða 1.600 pixlar í skjáupplausn.

Með "unnum" myndum er átt við að þær eru skornar til og yfirfarnar, sár og marblettir fjarlægðir o.fl.

Ef myndatakan heppnast vel getið þið fengið fleiri myndir umfram það sem er innifalið í myndatökunni.

Þið getið líka fengið auka “stafræn eintök” sem eru ekki í bók.

Hægt er að fá stærri fæla eða allt að A3+ stærð sem er ca 5.000 pixlar eða fyrir stækkanir 40x60cm og enn stærri. Sjá “Prentleyfi

Net-upplausn Prentstærð/pixlar Verð/stk
::: ::: :::
Auka stafrænar myndir í netupplausn - (ca A6) 10x15cm / 1.600px 2.500
10+. 10 eða fleiri stafrænar aukamyndir í netupplausn 10x15cm / 1.600px 1.900
 

Prentleyfi

Ef þið viljið vinna úr myndum sjálf!

Með "Prentleyfi" getið þið unnið sjálf úr myndunum (til eigin nota).

Myndskrárnar (fælarnir) eru þá afhentir í hærri upplausn en það sem er innifalið. Þannig getið þið látið prenta og ramma inn fleiri myndir. Það getur verið allt frá miðlungs stækkunum upp í risamyndir.

Það eru kostir og gallar sem fylgja því. Það getur kostað minna, sérstaklega ef þið viljð prenta margar eins myndir, eða velja aðra framsetningu en ég býð uppá. Á móti kemur að þá hef ég minni stjórn á lokaútkomu. Myndir eru í raun ekki fullunnar fyrr en listamaðurinn er búin að fullvinna myndirnar, prenta, ramma inn fullunnið sem listaverk.

Til þess er jú fagfólkið…

Net-upplausn Prentstærð/pixlar Verð/stk
::: ::: :::
Prentleyfi A3+ - Stök mynd í fullri upplausn A3+ - 30x40cm / 5.000px 12.000
Prentleyfi 10 - 10 myndir í fullri upplausn A3+ - 30x40cm / 5.000px 65.000
Prentleyfi 20 - 20 myndir í fullri upplausn A3+ - 30x40cm / 5.000px 99.900
 
Hágæðaprentari

Full þjónusta

Útprentun og innrömmun - allt á einum stað

 

Ekkert mál….

Full ljósmyndaþjónusta til að þið losnið við allt vesenið

Ég er með áratuga reynslu af myndatökum, myndvinnslu, hönnun, útprentun og innrömmun. Fólk kemur til okkar til að fá TOPP MYNDIR og FULLA ÞJÓNUSTU. Þú þarf því ekki að þeytast út um borg og bý til að leita að útprentun, innrömmun eða annarri prentþjónustu hjá mörgum aðilum sem hafa minni ástríðu fyrir “mínum” verkum. Handverkið er punkturinn yfir i-ið.

Ég nota fyrsta flokks prentefni og hágæða prentara, 8 lita Epson P8000 með litarefni sem endist í 100+ ár. Þá er ég með innrömmunarþjónustu til að skila myndverkum tilbúnum til að hengja upp á vegg.

Jón Páll ljósmyndari hefur verið að búa til myndir síðan hann byrjaði að fikta við ljósmyndun í MA 1985. Fullkomnunarárátta ljósmyndarans sér um að útprentun, innrömmun og frágangur verði fyrsta flokks og endist ævilangt.

Fagmennska tryggir gæðin

SVG file icon
 

Hvað á myndin að vera stór?

Gamalt húsráð er að setja málningarteip, eða annað límband sem skilur ekki eftir sig lím, fyrir útlínurnar. Þá er auðveldara að sjá fyrir sig hvaða stærð hentar rýminu best!

Persónulegri listaverk eru vandfundin

 
SVG file icon
 

Þarftu aðstoð við að setja upp myndavegg?

"Af hverju að velja innrammað myndverk?"

Margir ætla sér að láta prenta og ramma inn sjálfir, en raunin er sú að ferlið er tímafrekt og flókið. Frá því að velja rétta pappírinn yfir í að finna ramma sem passar og gler sem glampar ekki – þetta er mikil vinna.

Með því að láta okkur um Veggdjásnið eða önnur Innrammörð myndverk, færð þú tilbúið listaverk í hendurnar. Þú sleppur við búðarferðirnar og biðina hjá rammafrestaranum. Þú færð fullkomna niðurstöðu strax, svo börnin þín geti farið að njóta myndarinnar á veggnum samdægurs.

Þið getið sent okkur mynd af veggnum ykkar og við setjum upp skissur þannig að þið sjáið hvernig veggurinn gæti litið út áður en búið er að setja nokkurn nagla í vegginn.

Fegraðu heimilið með myndverkum af börnunum þínum

 
SVG file icon
 
 

10 góðar ástæður til að koma með fjölskylduna í myndatöku:

  1. Þið eignist einstök listaverk af fjölskyldunni ykkar.

  2. Myndverk og prentmunir eru lífstíðareign.

  3. Þið varðveitið ómetanlegar minningar um viðburði og tímabil í lífi barnanna, tími sem kemur aldrei aftur.

  4. Notið tækifærið og fegrið heimilið með myndum af mikilvægasta fólki í heimi - börnunum ykkar.

  5. Þið sendið börnunum ykkar skýr skilaboð um það hvað þau skipta ykkur miklu máli - við elskum ykkur.

  6. Þið eruð þátttakendur í listrænu ferli sem er í senn skapandi, spennandi og skemmtilegt.

  7. Þið getið fengið margar gerðir myndverka og prentmuna úr einni myndatöku - allt eftir ykkar þörfum.

  8. Fjölskyldumyndir kosta minna en ýmsar fjöldaframleiddar vörur sem veita ykkur takmarkaða ánægju og endast stutt!

  9. Myndir í “skýinu”! Hvað endast þær lengi og hvað verður um símamyndir í framtíðinni?

  10. Eru börnin ekki merkilegasta og mikilvægasta sköpun ykkar. Þau eru fallegustu djásnin til að setja á veggina ;-)

Fjárfestu í fjölskyldulist!

SVG file icon

Jón Páll - ljósmyndari

Fyrir þínar mætustu minningar

Myndir, texti og vefhönnun ©Jón Páll Vilhelmsson | sala@jonpall.is