Barna-, systkina- og fjölskyldumyndir

Fyrir þínar mætustu minningar

Bóka tíma
SVG file icon

Börnin og fjölskyldan er kjarni tilverunnar

Er ekki tilvalið að hafa myndir af fallegasta fólki í heimi fyrir augunum alla daga ársins?

 

Hver er dýrmætasta eignin þín?

Það kostar sitt að reka heimili og sem foreldrar eigið þið fullt af verðmætum hlutum en það allra dýrmætasta sem þið eigið eru börnin þín - ekki satt? Er ekki sjálfgefið að fegra heimilið með myndum af fallegasta fólki í heimi - börnunum og fjölskyldunni ykkar?

Að styrkja fjölskylduböndin

Það skiptir líka máli fyrir börnin að alast upp í umhverfi þar sem þau eru metin að verðleikum og eru sýnileg sem hluti af heimilislífinu. Fjölskyldumyndir hjálpa til við að viðhalda tengslum og styðja við fjölskyldusamlífið ⇢ alla daga ársins.

Heimilisprýði og varanlegar minningar

Með því að koma með börnin í myndatöku ertu að fjárfesta í framtíð fjölskyldunnar. Þið eignist varanlegar myndir af dýrgripunum ykkar og varðveita ómetanlegar minningar um æskuár barnanna.

Vandamálið er að þau vaxa svo hratt! Þau þroskast, dafna, fermast, útskrifast og áður en maður veit af eru þau orðin fullorðin. Svo eru þau farin að heiman en engar varanlegar myndir til af þeim! Staðreyndin er sú að fólk fer ekki oft í myndatöku!

Höfum gaman, gerum þetta saman og gerum þetta vel.

Bóka tíma
SVG file icon
SVG file icon

Fyrir þínar mætustu minningar

Sýnishorn af verkum, innblástur og hugmyndir Smellu á myndirnar til að skoða stærri

 
SVG file icon

Jón Páll Vilhelmsson - ljósmyndari

Myndsköpun og listrænn metnaður

Jón Páll Vilhelmsson er ljósmyndari og listamaður sem “skapar” fjölskyldumyndlist. Á heimilum landsmanna hanga tugþúsundir ljósmynda og myndverka eftir Jón Pál sem hefur verið starfandi ljósmyndari í yfir 25 ár - bæði á íslandi og víða erlendis.

Jón Páll hefur lag á að láta börnum og einstaklingum líða vel í myndatöku. Undir styrkri leikstjórn, áhugaverðum uppstillingum, skapandi lýsingu og eftirvinnslu af miklu listfengi færðu eftirtektaverðar fjölskyldumyndir sem standast tímans tönn.

Dýrmætar minningar og varanleg listaverk?

Það er fátt dýrmætara en ásjónur barnanna ykkar. Ég hvet fólk til að “taka” augnablikmyndir á símana sína og jafnvel setja á ísskápinn en duga slíkar myndir sem varanlegar minningar af ykkar dýrmætustu eign? Er þá ekki betra að treysta fagmanni með áratuga reynslu afmyndsköpun og fegra heimilið með ljósmyndum af fallegu fjölskyldunni þinni?

Jón Páll - ljósmyndari
 

Að koma í myndatöku til Jóns Páls ljósmyndara er persónuleg upplifun þar sem þið eignist sérskapað handverk og lífstíðareign.

SVG file icon

Ein myndataka - margir möguleikar

SVG file icon

Hvernig framsetning hentar þínu heimili er þitt að ákveða.

Við sjáum um alla myndvinnslu, hönnun, útprentun og innrömmun. Handbragð meistarans tryggir prentgæði, faglega lumgjörð og lífstíðarendingu.

SVG file icon

Tvískipt þjónusta:


Fyrri hluti ⇢ Myndataka

Fyrst komið þið í myndatöku og greiðið fyrir þann hluta.

  • Þetta er skapandi ferli sem byggist á flæði til að fá “grunnmyndir” til að velja úr. “Valdar” myndir eru síðan fullunnar og tilbúnar til útprentunar!

  • Það er engin myndataka eins og ”pakkatilboð” henta í raun fæstum.

  • Ef börnin eða táningurinn eru óviljug er betra að velja styttra prógram! Yngri börn og stærri fjölskyldur þurfa meiri tíma.

  • Með meiri tíma er hægt að skapa flottari myndverk og fá fleiri góðar myndir með fjölbreyttari möguleikum fyrir áframhaldandi myndvinnslu!

  • Þið getið fengið margar gerðir útprentana úr einni myndatöku - allt eftir ykkar þörfum.

  • Fyrir myndatökuna er gott að velta því fyrir sér hvað þið viljið fá út úr myndatökunni. Hugsa þá um veggina, heimilið og í áratugum…

  • Munið samt að ein góð barna- eða fjölskyldumynd er óendalega mikið betra en engin mynd!

Alltaf gaman í myndatöku…

 
SVG file icon
 

Smellið á mynd til að skoða stærri!

Seinni hluti ⇢ Úrvinnsla mynda!

Síðan veljið þið myndverk, prentmuni og myndskrár eftir þörfum!

  • Það er í raun engin formúla um það hversu margar myndir innifaldar og slíkt.

  • Verð fer eftir fjölda mynda, stærð og framsetning á veggmyndum, fjölda mynda í myndabók, dagatöl o.s.frv. Þess vegna er betra að aðskilja myndatökuna frá myndvinnslu, myndverkum og prentmunum.

  • Þetta er listrænt handverk og sérunnið samkvæmt ykkar óskum.

  • Þið hafið meira val og stjórnið betur hvað kemur út úr myndatökunni sem kostar minna fyrir vikið.

  • Við geymum myndirnar þannig að þið getið alltaf keypt fleiri myndir síðar til að bæta á veggina, til minningar eða til gjafa.

  • Persónulegri eða eigulegri jólagjafir eru vandfundnar!

SVG file icon
 

Þið eruð bara 4 skrefum frá því að vera komin með fallegar fjölskyldumyndir upp á vegg á heimilinu!

 
Bóka tíma
Myndataka
Velja myndir
Afhending
 
SVG file icon

Hvað hentar ykkur?

3 kostir í boði fyrir allar gerðir af fjölskyldum

 
SVG file icon

Einfalt

Korter | 2+ myndir

Miklu betra en engar myndir


Myndataka:

  • Nokkrar góðar brjóstmyndir
  • Fermingar eða útskriftarmyndir
  • 1-2 uppstillingar (2-5 góðar myndir)
  • Einfalt og fljótlegt

Innifalið:

  • 2 stafrænar myndir
  • (1.600px / 5.000kr virði)
  • Myndgátt til að auðvelda val mynda
  • Ca 1 klst í vinnu í allt

Möguleikar í úrvinnslu:

  • Stækkanir m/kartoni og rammar ?
  • Minni stækkanir án kartons ?
  • Jóla-/ boðs-/ þakkar-/ tækifæriskort ?
  • 2-4 aukamyndir !

30.000kr

SVG file icon
SVG file icon

Vinsælt

Hálftími | 5+ myndir

Full myndataka fyrir einstakling


Myndataka:

  • Einstaklingur eða minni fjölskylda með eldri börn
  • 5+ uppstillingar (5-20 góðar myndir)
  • Fullt af myndum til að velja úr
  • Góðar einstaklingsmyndir
  • 1 mynd með foreldrum
  • Fataskipti - 1 sinni
  • Róla, leikmunir o.fl.
  • Kirtill (við erum með helstu stærðir)

Innifalið:

  • 5 stafrænar myndir
  • (1.600px / 12.5000kr virði)
  • Myndgátt til að auðvelda val mynda
  • Fundur til að auðvelda val á prentmunum
  • Ca 2 klst í vinnu í allt

Möguleikar í úrvinnslu:

  • Vandaðar veggmyndir ?
  • Striga- /ál- / akríl-/ innrammaðar myndir ?
  • Stækkanir m/kartoni og rammar ?
  • Jóla-/ boðs-/ þakkar-/ tækifæriskort ?
  • Myndabækur og dagatöl með 10-15 myndum ?
  • 5-15 auka myndir eftir þörfum ?

60.000kr

SVG file icon
SVG file icon

Veglegt

Klukkustund | 10+ myndir

Barna-, fermingar- og úskriftarmyndatökur ásamt systkina- og fjölskyldumyndum


Myndataka:

  • Yngri börn og stærri fjölskyldur
  • 10+ uppstillingar (10-40 góðar myndir)
  • Fataskipti - allt að 3 sinnum
  • Meiri tími til að gera betur
  • Listrænar uppstillingar
  • Góðar einstaklingsmyndir
  • Fjölskyldumyndir
  • Systkinamyndir
  • Tvíburar / þríburar
  • Rólan, glugginn o.fl.
  • Hversdagsföt/Áhugamál/Leikmunir/Gæludýr
  • Kirtill (við erum með helstu stærðir)

Innifalið

  • 10 stafrænar myndir
  • (1.600px / 25.000kr virði)
  • Myndgátt til að auðvelda val mynda
  • Fundur til að auðvelda val á prentmunum
  • Ca 3-4 klst í vinnu í allt

Möguleikar í úrvinnslu:

  • Veglegar veggmyndir ?
  • Striga-/ ál-/ akríl-/ innrammaðar myndir ?
  • Stækkanir m/kartoni og rammar ?
  • Myndabækur og dagatöl með 15-40 myndum ?
  • Jóla-/ boðs-/ þakkar-/ tækifæriskort ?
  • 10-40 auka myndir eftir þörfum ?

90.000kr

SVG file icon
SVG file icon

Bóka tíma:

  • Athugið að velja tíma sem hentar yngri kynslóðinni og skiljið stressið eftir heima!

  • Það er ekki hversdagslegt að fara í myndatöku og þetta er í raun sérstakur viðburður sem fólk man eftir.

  • Er ekki í lagi að taka sér smá frí frá vinnu eða sleppa eins og einni æfingu?

  • Það sem skiptir mestu máli er að foreldrum og börnum líði vel, eruð í ró en ekki rjóð af streitu!

  • Það er betra að bóka tíma fyrr um daginn til að þið verðið ferskari á myndunum - næstu 50 árin… ;-)

SVG file icon

Listrænt handverk ⇢ Lífstíðareign

 

10 góðar ástæður til að koma með börnin til okkar í myndatöku

  1. Þið eignist persónuleg listaverk af fjölskyldunni, fegrið heimilið og leysið jólagjafavandann - allt í einni töku.

  2. Þið sendið börnunum ykkar mikilvæg skilaboð: Þið skiptið okkur máli - alla daga ársins, áratugum saman.

  3. Varðveitið minningar um viðburði og aldursskeið barnanna - tímabil sem koma aldrei aftur

  4. Barna- og fjölskyldumyndir á veggjum heimila eru ekki bara punt eða prjál heldur áminning um kjarna tilverunnar og mikilvægur þáttur í að halda fjölskyldunni saman.

  5. Fjölskyldumyndir hjálpa til við að viðhalda tengslum og minna á væntumþykjuna sem umlykur heimilið - líka þegar eitthvað bjátar á!

  6. Að fara í myndatöku er áhugaverð upplifun og samverustund meðal fjölskyldunnar. Þið eruð þátttakendur í listrænu ferli sem er í senn skapandi, spennandi og skemmtilegt.

  7. Það er fjölskyldan ykkar sem umbreytir húsi í heimili, en heimili án fjölskyldumynda er eins og búð fullt af glingri en skortir persónuleika.

  8. Myndverk af börnunum ykkar og prentmunir fullir af ómetanlegum myndum er varanleg minning. Hvað endast ljósmyndir í “skýinu” lengi?

  9. Að fá fallegar fjölskyldmyndir kostar minna en ýmsar fjöldaframleiddar vörur sem veita ykkur takmarkaða ánægju og endast skammt! Fyrir upphæð sem samsvarar einu til tveimur verksmiðjuframleiddum skópörum eignist þið myndverk og minningar af ykkar dýrmætustu eign.

  10. Það getur verið púsluspil að koma fjölskyldunni saman fyrir myndatöku en umstangið verður algjörlega þess virði þegar þið verðið komin með myndirnar upp á vegg og þið farin að deila þeim með vinum og vandamönnum.

Börnin og fjölskyldan skiptir máli ⇢ Sýndu það í mynd-verki

Verðlisti fyrir myndverk og Prentmuni
SVG file icon

Myndatökur og myndvinnsla ⇢ Allt á einum stað

 

Topp-aðstaða til að skapa topp-myndir

Verið velkomin í Superstudio, eitt fullkomnasta ljósmyndastúdió landsins með topp búnaði til myndsköpunar ásamt góðri aðstöðu fyrir viðskiptavini. Við fullvinnum myndverk og prentmuni að öllu leyti til að þið losnið við allt vesenið. Fullkomnunarárátta ljósmyndarans sér um að allt ferlið frá undirbúningi, uppsetningu á setti og ljósabúnaði, leikstjórn, myndatöku, vali og myndvinnslu verði fyrsta flokks og endist ævilangt.

Myndsköpun í 30 ár

Jón Páll ljósmyndari hefur unnið við ljósmyndun í fullu starfi í rúm 30 ár eða síðan hann lauk BA prófi í ljósmyndun frá hinum virta ljósmyndaskóla Brooks Institude of Photography í Santa Barbara í Kaliforníu.

SVG file icon

Útprentun og innrömmun

Við eru með áratuga reynslu af myndatökum, myndvinnslu, hönnun og útprentunum. Við erum með fullkomna prentvinnslu og innrömmunaraðstöðu þannig að þú ert laus við allt vesenið. Við prentum myndirnar á fyrsta flokks prentefni úr hágæða prentara, 8 lita Epson P8000 með litarefni sem endist í 100+ ár. Myndverk koma innrömmuð með upphengjum, tilbúin til að hengja upp á vegg.

Fagmennska í 30 ár

Jón Páll byrjaði að fikta við ljósmyndun í Menntaskólanu á Akureyri. Það eru því komin 40 ár síðan hann framkallaði sínar fyrstu myndir og fyrstu stækknair í myrkrakompu FilMA - ljósmyndaklúbbi MA 1985.

 
SVG file icon
 

Spurningar og svör ef þú ert ekki ennþá viss!

  • Hvað gerist ef þú bókar ekki núna? —> Börnin eldast og tækifærið fer forgörðum.

  • En ef ég kem síðar? —> Barnið verður aldrei aftur jafn lítið og það er núna.

  • Er kannski betra að bíða fram á vor eða vetur eða næsta ár? —> Það er enginn rangur aldur eða réttur aldur. Það er samt öruggt að enginn tími er rangur tími. Enginn tími engar myndir. Engar myndir á veggjunum, engin myndaalbúm, engar myndir til að gefa afa og ömmu. Svo fara börnin að heiman en þú endar með tómlegt og ópersónulegt heimili. Þú ert hér núna. Rétti tíminn er núna.

  • Barnið mitt situr aldrei kyrrt! - Engar áhyggjur. Á 30 árum hef ég þróað mínar aðferðir til að kalla fram það besta hjá börnunum. Stundum fáum við bestu myndirnar til akkúrat vegna þess að barnið er bara eðlilegt og það sjálft.

  • Ég þarf að léttast/fara í klippingu/laga mig til fyrst! —> Sannleikurinn er sá að foreldrar eru oftast í aukahlutverkum en barnið elskar þig alveg jafn mikið eins og þú ert núna. Elskaðu sjálfa þig.

  • Við eigum ekkert til að fara í sjálf! —> Skoðuðu síðun um fataval og ráðgjöf og komdu svo aftur hingað.

  • Þetta kostar of mikið núna! —> Bíddu bara með eitthvað annað. Peningar sáldrast í gegnum götin á fötunum okkar. Fjölskyldumyndataka er ekki lúxus. Það er nauðsyn. Það skiptir þig og makan máli að eiga góðar myndir eða teikningar af börnunum og fjölskyldunni. það skiptir börnin máli þó að þau minnist kannski ekki mikið á það. Komdu í myndatöku og fáðu minni myndir fyrst. Þú getur alltaf fengið stærri vegg-djásn síðar.

  • Hvað er mikilvægara í þínu lífi? —> Nýtt sófasett á 150.000! Merkjataska á 70.000! Ný þvottavél á 69.900 á útsölu og hvað er það það í samanburði við fjölskyldan þína?

  • Hvers vegna ég/við —> Ég get lofað þér því að þú finnur ódýrara pakkatilboð en er það það rétta fyrir þig, börnin, heimilið og framtíðina?

  • En fjárfesta í “alvöru” listaverki? —> Tek undir það ef það er listaverk með börnunum þínum :-)

  • Ef barnið á alveg hræðilegan dag? Ef við náum engu (sem gerist nánast aldrei!), þá finnum við nýjan tíma ykkur að kostnaðarlausu. Ég sleppi ykkur ekki fyrr en við erum með myndir sem þið elskið.

  • Hins vegar ef barnið er veikt daginn sem myndatakan fer fram þá er miklu betra að láta okkur vita og finna annan tíma. Við viljum fá ykkur í góðum gír.

 
Bóka núna
SVG file icon
 
SVG file icon

© Jón Páll Vilhelmsson - ljósmyndari