Portrettmyndir

Portrettmyndir

Karakter-portrett fyrir skarpari skilaboð!

⇢ Ímyndarsköpun fyrir opinbera einstaklinga.

Við gefum þér meiri tíma, vinnum betur á stærra setti með meiri stjórn á lýsingu. Flottari bakgrunnar, meira photoshop, hærri upplausn. Fyrir portrettmynd geturðu komið með föt til skiptanna og jafnvel verið betur undirbúin með hárgreiðslu, förðun og leikmuni. Við hjálpum þér að skapa ímynd af þinni persónu! Afhent í hárri prentupplausn til að hægt verði að nota myndirnar í markaðs- og kynningarefni.

Upplýsingar um Portrettmyndir

Read More

Persónumyndir

Persónumyndir

Heimilislegar myndir til að ramma inn.

⇢ Til að eiga, deila og fegra heimilið

Persónumyndir eru vandaðar portrettmyndir af einstaklingum, pörum og hjónum til heimilisnota. Til dæmist til að setja í ramma upp á vegg eða standramma. Unnið á stærra sett með betri lýsingu, flottari bakgrunni og gefum ykkur meiri tíma. Meira unnið í Photoshop og afhent í hærri upplausn heldur en Prófílmynd. Heldur mildari og heimilislegri stíll heldur en í karakter-portrett.

Upplýsingar um Persónumyndir

Read More

Prófílmyndir

Prófílmyndir

Frjálslegar andlitsmyndir

⇢ Einfalt og ódýrt

Það sem við köllum prófílmyndir (mini portrett) eru frjálslegar passamyndir þar sem þú mátt brosa, snúa til hliðar, halla höfði, hafa öðruvísi bakgrunn og jafnvel laga aðeins. Þær eru hins vegar teknar á litlu einföldu passamynda-setti sem þýðir einfalt og ódýrt. Afhentar í net-upplausn.

Upplýsingar um Prófílmyndir

Read More

Passamyndir

Passamyndir

Til að þú þekkist!

⇢ Formfast skv. opinberum stöðlum

Passamynd (e. ID photo) er auðkennismynd samkvæmt stífum kröfum hins opinbera til að þú þekkist á myndinni. Auðkennismyndir eru þ.a.l. ekki endilega besta útgáfan af þér. Lýsing beint framan á, engir skuggar, einfaldur bakgrunnur og þá má ekkert eiga við myndina í eftirvinnslu. Úprentaðar litlar myndir og afhentar stafrænt í lágri upplausn.

Upplýsingar um Passamyndir

Read More