Karakter-portrett
Hver er þín birtingarmynd?
Persónusköpun fyrir áhrifafólk og fyrirmyndir
Ef þín persóna skipti máli og þú vilt hafa áhrif í samfélaginu þá þarftu góðar myndir til að þín skilaboð að nái í gegn.
Karakter-portrett er myndræn framsetning fyrir frammáfólk og opinberar fyrirmyndir svo sem: listamenn, stjórnendur, fagfólk, fræðinga, stjórnmálafólk, forstjóra, eigendur og fleiri til birtingar í hinum ýmsu miðlum.
Með eftirtektaverðri portrettmynd sendir þú skýr skilaboð út í samfélagið um hvað þú stendur fyrir þannig að fólk tekur betur mark á þér.
Sérsniðin ímyndarmynd fyrir þína ásjónu og ásýnd.
Sýnishorn af verkum - Smellið til að skoða stærri
Þegar orðstír, trúverðugleiki og traust skiptir máli!
Auðþekkjanlegur?
Með góðri portrettmynd sendirðu út skilaboð um fagmennsku, trúverðugleika, sjálfstraust og stíl.
Eftirtektarverð mynd er fjárfesting til framtíðar
Með góðri portrettmynd ertu að fjárfesta í sjálfum/sjálfri þér. Ekki gjaldfella það sem þú hefur afrekað á löngum ferli með lélegri mynd sem flakkar stjórnlaust um alnetið.
Þó að það sé eitt ákveðið verkefni sem þú stendur frammi fyrir núna þá munu góðar portrettmyndir nýtast þér um ókomin ár. Ef þú hugsar það í víðara samhengi þá eru góðar portrettmyndir ómetanlegar. Þetta snýst ekki um verð á myndatöku heldur hversu verðmæt/ur þú ert!
Hver ert þú?
Markmiðið er að ná þér og því sem þú stendur fyrir! Jafnvel skapa ímynd í kringum það sem þú hefur afrekað eða stendur fyrir! Þegar vel tekst til tekst okkur jafnvel að mynda þína innri persónu skapað táknmynd af þér “e. icon”.
Það þarf að finna rétta útlitið fyrir myndirnar, skapa tilfinningu og stemningu sem hentar verkefninu! Klæðnaður og stíll skiptir miklu máli. Við mælum með að vanda fataval og taka með auka fatnað til að prófa mismunandi útgáfur. Mæta vel snyrt og úthvíld. Gott er að bóka saman tíma snyrtingu og myndatöku þannig að þú mætir í myndatatökuna sem besta útgáfan af sjálfum þér.
Metnaðarfull myndataka
Í myndatöku hjá okkur er hægt að fara í margar ólíkar áttir en þetta snýst í raun um að skapa rétta ásýnd fyrir þína ásjónu.
Bókaðu tíma í myndatöku hjá virtum ljósmyndara með yfir þrjátíu ára reynslu af ímyndarsköpun og umbreytinging verður sjáanleg. Þú ert skrefi nær eigin markmiðum með nýrri portettmynd þar sem þú er besta útgáfan af sjálfum/sjálfri þér.
Verð og tímabókun:
Portrettmyndir eru unnar í fullkomnu stúdíó og á flottu setti. Við erum með fjölbreytta bakgrunna og setjum upp framúrskarandi lýsingu til að sýna þig í réttu ljósi. Með meiri eftirvinnslu í Photoshop þar sem öllu tjaldað til færðu einstakar portrettmyndir til birtingar í fjölmiðlum og á neti.
Hvað er nú hvað?
Portrettmynd - Persónumynd - Prófílmynd - Passamynd
Mismunandi nálgun fyrir ólíka notkun ⇢ Gæðamunur, stærðarmunur og verðið eftir því!
Karakter portrett eru vandaðar sérunnar ímyndar-myndir með meiri sköpunarkrafti. Við setjum meira púður, kraft og dínamík í verkið til að búa til eftirtekta verða mynd af þér. Hægt er að nálgast “Karakter portrett” á ýmsa vegu en það er alltaf spurning hversu langt maður má ganga í listrænu ferli. Of listrænar myndir henta ekki forstjóra fyrirtækis en klassísk portrettmynd hentar ekki tónlistarmanni. Það er okkar að finna rétta “lúkkið” fyrir þig og það sem þú stendur fyrir.
Klassískt - Góðar portrettmyndir sem þið getið verið óhrædd við að birta í fjölmiðlum en eruð samt þekkjanleg og trúverðug.
Frumlegt - Við leitumst við að rugga bátnum aðeins. Þú kemur með leikmuni og fleiri föt til skiptanna. Við leitina að réttu myndinni prófum við ýmislegt en þú þarft að þora að vinna með okkur og taka þátt.
Listrænt - Við búum til myndir sem fara vel út fyrir þægindarammann og við gefum okkur listrænt frelsi til að skapa eitthvað einstakt. Þegar þú vilt koma með sterka, skapandi, listræna mynd fyrir sérstök skilaboð eða ná athygli. Við elskum að gera listrænar myndir og láta lógík, settleika eða hefðbundna nálgun lönd og leið. Myndirnar gætu verið í ætt við listrænar tískumyndir, tímarit, tónlistarfólk eða listsýningu!
Persónumyndir eru eigulegar heimilislegar myndir sérstaklega til að prenta út. Vandaðri og sett meiri vinna í verkið heldur en í prófílmyndum. Eru samt hefðbundnari er karakter portrett.
Prófílmyndir eru fínar andlits eða brjóstmynd í netupplausn fyrir heimsíðu og félagsmiðla. Einfalt og ódýrt.
Passamynd er í raun bara lítil einföld, auðlesin mynd til að þú þekkist. Tekur stuttan tíma en gæðin takmarkast af ríkisstöðlum.
© Jón Páll Vilhelmsson - ljósmyndari