Viltu vinna sem ljósmyndari?

Ef þú hefur brennandi áhuga á ljósmyndun, ert í námi, búin með nám eða með heilmikla reynslu og vilt vinna sem ljósmyndari þá endilega hafðu samband.

Sjá neðar!

 

Sýnishorn af því sem við gerum.

  1. Barna- og fjölskyldumyndir, fermingar, útskriftir, bumbumyndir, portrett o.fl.

  2. Brúðkaup og Pre-wedding fyrir erlenda gesti.

  3. Auðkennis- og starfsmannamyndir

  4. Auglýsingaljósmyndun, vörumyndir, ýmis verkefni á vettvangi og uppstillingar í studio.

  5. Landslagsljósmyndir, náttúrumyndir og margt fleira.

Sýnishorn: Jón Páll


Við erum að leita að framtíðar ljósmyndara/samstarfsaðila hjá SuperStudio.

Um er að ræða starf ljósmyndara á ljósmyndastofu, í eftirvinnslu, prentun og í fjölbreyttum ljósmyndaverkefnum.

Viltu verða betri ljósmyndari og vinna með okkur í einu fullkomnasta ljósmyndastúdíó á Íslandi?

Að vinna sem ljósmyndari á íslandi er krefjandi en ákaflega gefandi starf, sérstaklega þar sem verkefnin eru svo fjölbreytt.

  • Fyrst og fremst þarftu gott auga.

  • Einlægan áhuga á ljósmyndun.

  • Vera með frjóa hugsun og vera lausnamiðuð.

  • Þurfa að kunna á helstu stillingar á DSLR myndavél.

  • Þurfa að vera kunnug Adobe Lightroom og Photoshop.

  • Tala og skrifa bæði íslensku og ensku.

  • Vera með bílpróf.

  • Vera með ríka þjónustulund.

  • Hafa gott viðmót í mannlegum samskiptum.

ATH: Þetta er ekki starf fyrir byrjendur í ljósmyndun.

  • Laun eru samningsbundin og miðast við nám, aldur, reynslu, getu og fleira.

  • Námssamningur er a.m.k. 1 ár og helst skuldbinding til 2ja ára.

  • Við erum að leita að framtíðarljósmyndara hjá Superstudio!

Þú lærir af reynslunni:

  • Að þekkja allar stillingar á myndavélum.

  • Nota mismunandi linsur og fylgihluti.

  • Að sjá, skilja og nota ljós og skugga.

  • Mynduppbygging, litir, kontrast, áferð, innihald o.fl.

  • Að nota ljósabúnað í studio og á vettvangi

  • Gluggabirta, endurvarpar.

  • Eftirvinnsla í Adobe Lightroom og Photoshop

  • Setja upp albúm og myndabækur til prentunar.

  • Prentun, frágangur og innrömmun.

  • Framsetning og kynning á þjónustu ljósmyndara.

  • Taka myndir af fólki og vörum.

  • Samskipti við viðskiptavini.

  • Læra um viðskiptahliðina í ljósmyndun.

  • Markaðssetning í gegnum fjölmiðla og félagsmiðla.

  • Ýmis dagleg störf og tilfallandi verkefni.

  • Margt, margt fleira…

Hafið samband neðst!


Ljósmyndarar hjá SuperStudio/MannaMyndir:

Jón Páll Vilhelmsson

Jón Páll ljósmyndari er að góðu kunnur eftir tveggja áratuga viðveru í bransanum bæði hér á íslandi og víðar. Jón Páll hefur starfað við ljósmyndun síðan 1995 þegar hann kom frá námi í Bandaríkjunum. Hann nam við Brooks Institute of Photography í Santa Barbara í Kaliforníu. Hann hefur einnig starfað á erlendri grund. Árið 2007 starfaði hann sem ljósmyndari í Mílanó hjá tískukónginum Giorgio Armani.

Viðfangsefni Jóns Páls er afar fjölbreytt. Allt frá því að mynda börn og fjölskyldur upp í stórar og flóknar auglýsingamyndatökur fyrir stærstu fyrirtæki landsins.

Heimasíða:


Smelltu til að stækka…

Superstudio - ljósmyndaþjónusta

Við vinnum mjög fjölbreytt verkefni fyrir fyrirtæki og einstaklinga ásamt erlendum verkefnum. Auglýsingaljósmyndun, portrett, brúðkaup, passamyndir, barna- og fjölskyldumyndir, vörumyndir og ýmsar uppstillingar í studio.

Ég er með stórformat prentara Epson P8000 og prenta landslagsmyndir í allt að 110cm breidd. Við erum með fullkomna vinnuaðstöðu þar sem við prentum og römmum inn þúsundir mynda árlega.


Zsuzsa Darab

Zsuzsa kom frá Ungverjalandi í gegnum Erasmus nemaprógram Evrópusambandins. Hún er með gráðu í listrænni ljósmyndun og hafði líka verið í Finnlandi og Danmörku í framhaldsnámi.

Samningurinn var fyrst til 3ja mánaða en fékk svo fullt starf og vann hjá mér í 2 ár. Henni finnst gaman að ferðast um landið og hefur farið í um 30 ferðir um allt Ísland á síðastliðnum 2 árum.

Nú er hún farin að sinna eigin verkefnum í Ungverjalandi. Það eru ýmis listræn verkefni ásamt brúðkaupum og portrett sem heilla hana mest.

Heimasíða: - www.zsuzsadarab.com

 


Óli Haukur

Óli fékk nemasaming hjá mér 2015 og vann ýmis verkefni með mér og sá um eftirvinnslu.

Ég var með ljósmyndaferðir fyrir erlenda ljósmyndara á þeim tíma og hann fór í nokkrar ferðir. Fyrst með mér og síðan einn. Hann féll fyrir því og rekur núna eigin ferðaskrifstofu með sérhæfingu í ljósmyndaferðum. Hann ferðast víða um Ísland og er núna farinn að bjóða upp á ferðir til annara heimsálfa líka.

Ferðir: www.enroute.is

Ljósmyndasíða: www.olihphotography.com


Hann týndist undir parketi og eiginlega er öllum sama… hehe

Hann týndist undir parketi og eiginlega er öllum sama… hehe

Týndi aðstoðarmaðurinn!

Ég man ekki hvað hann hét en hann var bara hjá mér í stuttan tíma!


 

Umsókn:

Ef þú hefur áhuga á að vinna sem ljósmyndari hjá okkur í Superstudio sendu okkur tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum á netfangið: mynd@superstudio.is

  1. Umsóknarbréf

  2. Ferilskrá með mynd, Adobe forrit, nám og önnur reynsla.

  3. Hlekk á þínar myndir.

  4. 1-3 PSD fæla með öllum aðgerðum (layers), 8 bita og 1.600 pixla upplausn